Húsið sem nú er Hótel Djúpavík var byggt á 3ja áratug síðustu aldar fyrir konur sem unnu á söltunarplaninu við söltun síldar. Þá kallaðist það Kvennabragginn. Það var síðan gert upp árið 1985 og það sumar komu síðan fyrstu gestirnir á hótelið. Það sem hefur einkennt hótelið öll þess ár er hlýja og virðing fyrir „gamla tímanum“ Hafa þau hjón ávallt lagt mikla áherslu á að halda í gömlu gildin.