Árneshreppur
Verið öll 
ævinlega 
velkomin
  • Forsíða
    • Tilkynningar >
      • Auglýsing v/hvalárvirkjunar nóv 2018
      • Styrktarumsókn Áfram Árneshreppur!
      • Kynning á drögum að aðalskipulagsbreytingu vegna Hvalárvirkjunar.
      • Skipulags- og matslýsing vegna Hvalárvirkunar des 2016
      • Kennari óskast í Finnbogastaðaskóla
  • Þjónusta í Árneshreppi
    • Sveitarfélagið >
      • Fundargerðir sveitarstjórnar Árneshrepps
      • Norðurfjarðahöfn gjaldskrá
    • Gisting
    • Kaffi Norðurfjörður
    • Kaupfélagið í Norðurfirði
    • Smáauglýsingar Árneshrepps
    • Samgöngur
    • Krossneslaug
    • Sparisjóður Strandamanna Norðurfirði
    • Byggða - og minjasafnið Kört
    • Félagsheimilið
    • Björgunarsveitin Strandasól
  • Fréttir/Auglýsingar
    • Gunna fótalausa - ný sýning í Kört opnar 19.júní
    • Þorpsvitund & sútun - 21.-24.júní Félagsheimilinu í Trékyllisvík
    • Uppbyggingarsjóður styrkir
    • Tækifæri í Árneshreppi
    • Sveitarfélagið: fréttir og tilkynningar >
      • Athugasemdir v/aðalskipulags og deiliskipulags. >
        • Fylgiskjöl Landvernd >
          • Athugasemdir Rjúkanda
      • Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.
    • Litli Hjalli
    • Finnbogastaðaskóli
    • Gamlar fréttir
  • Fróðleikur
    • Myndbönd
    • Kort af Árneshreppi
    • Þingsályktun um Árneshrepp
    • Bækur
    • Heimasíður
Auglýst eftir styrktarumsóknum til Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða.

Nú er í annað skipti auglýst eftir styrkumsóknum til Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða sem rekinn er innan vébanda sóknaráætlunar landshlutans og er í umsjón Fjórðungssambands Vestfirðinga. Uppbyggingarsjóður veitir styrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar- og nýsköpunar, auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarstofnanna. Uppbyggingarsjóður varð til með samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 sem undirritaður var 10. febrúar 2015. Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 22. janúar 2016.
Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Hægt er að sækja um styrki til allt að þriggja ára, en vakin athygli á að framkvæmda- og fjárhagsáætlanir þurfa að miðast við þann tíma sem sótt er um styrk til. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur.
Samþykkt hefur verið að árið 2016 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:
a)  Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum
b)  Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi
c)  Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar
d)  Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu
e)  Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu
f)  Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina
g)  Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu
h)  Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi
i)   Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni
j)   Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana

​Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

​
Proudly powered by Weebly